Málvísindastofnun Háskóla Íslands

1.jpg

Ráðstefnur á næstu mánuðum (enn hægt að senda inn útdrátt):

Ráðstefnur á næstu mánuðum (hægt að skrá sig, of seint að senda inn útdrátt):

  • Grammatik i fokus 9.-10. febrúar 2012 í Lundi. Þetta er 26. ráðstefnan eða málstofan af þessu tagi.
  • Hugvísindaþing Háskóla Íslands, 9.-10. mars.
  • 36th Penn Linguistics Colloquium, University of Pennsylvania, 23.-25. mars. Sjá nánar hér
  • GLOW 35, Potsdam, 28.-30. mars 2012. Sjá nánar hér
  • The 11th International Conference of Nordic and General Linguistics, Freiburg 18.-20. apríl 2012. Sjá nánar hér.
  • The 8th International Conference on Language Resources and Evaluation(LREC) verður haldin í Istanbul 21.-27. maí 2012. Sjá nánar hér
  • Debrechen Workshop on Argument Structure (WAS), University of Debrecen, 25.-27. maí 2012. Alþjóðleg ráðstefna um rökliðagerð (merkingarhlutverk frumlags, andlags o.s.frv.).  Nánari upplýsingar hér
  • Non-Canonically Case-Marked Subjects within and across Languages and Language Families: Stability, Variation and Change, Reykjavík og Hótel Fljótshlíð, 4.-8. júní 2012. Sjá nánar hér .
  • Norræn ráðstefna um hugræn málvísindi í Osló 10.-11. júní 2012. Nánari upplýsingar hér
  • 15th EURALEX International Congress, Osló 7.-11. ágúst 2012.  Sjá nánar um ráðstefnuna hér
  • Félagsmálfræðileg ráðstefna í Berlín 22.-24. ágúst. Nánari upplýsingar hér

Fyrirlestrar um málfræðileg efni á næstu dögum:

  • Málvísindakaffi föstudaginn 10. febrúar 2012 kl. 11:30 í stofu 301 í Nýja Garði: Ásta Svavarsdóttir og samstarfsmenn kynna nýtt rannsóknaverkefni um íslensku á 19. öld.
  • 

 

Upplýsingar um rannsóknastyrki og umsóknarfrest:

  • Styrkumsóknadagatal Hugvísindastofnunar: Yfirlit yfir styrki og umsóknarfresti. Sjá hér
  • NOS-HS. Vænir norrænir rannsóknastyrkir til ýmiss konar verkefna. Umsóknarfrestur til 15. febrúar 2012. Sjá nánar hér
  • Nordplus. Ýmiss konar styrkir til að efla norræna samvinnu. Umsóknarfrestur til 1. mars 2012. Nánari upplýsingar hér
  • Tækjasjóður (gegnum RANNÍS). Styrkir til rannsóknastofnana til kaupa á dýrum tækjum. Umsóknarfrestur til 15. mars 2012. Nánari upplýsingar hér
  • Evrópustyrkur (ERC) til reyndra rannsóknamanna. Umsóknarfrestur til 11. apríl 2012. Nánari upplýsingar hér
  • Evrópustyrkur (HERA) vegna "menningarmóta" (cultural encounters). Forumsókn í maí 2012. Nánari upplýsingar hér
  • Rannsóknasjóður (í gegnum RANNÍS). Umsóknarfrestur til 1. júní. Nánari upplýsingar hér

Um stofnunina



Málvísindastofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun. Hún er ein af grunnstofnunum Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands og starfar innan hennar samkvæmt 9. grein laga nr. 41/1999 um deildir og rannsóknastofnanir, sbr. einnig reglur um Hugvísindastofnun frá 11. desember 2009. Hlutverk Málvísindastofnunar Háskóla Íslands er nánar skilgreint í starfsreglum sem stjórn Hugvísindastofnunar hefur samþykkt. Meðal hlutverka Málvísindastofnunnar er:

  • Að vera vettvangur rannsókna í málvísindum og undirgreinum þeirra.
  • Að gangast fyrir útgáfu, ráðstefnum, fyrirlestrum og annarri starfsemi sem stutt gæti rannsóknir og kennslu í málvísindum.
  • Að veita ungum fræðimönnum á sviði íslenskrar málfræði og almennra málvísinda og framhaldsnemum í málvísindum aðstöðu og tækifæri til rannsóknastarfa.
  • Að efla tengsl rannsókna og kennslu.
  • Að sinna verkefnum á sviði málvísinda sem miða að þjónustu og fræðslu.

Þriggja manna stjórn stýrir stofnuninni og tvær rannsóknastofur starfa innan vébanda hennar.